Skip to main content

Um okkur

Ráðlagður dagskammtur er hádegisverðarþjónusta sem býður fyrirtækjum og stofnunum mat í hádeginu. Persónuleg þjónusta, ánægja viðskiptavina, góð fjölbreytt matargerð og sanngjörn verðlagning eru okkar markmið.

Í boði er hollur heimilismatur þar sem sérstök áhersla er lögð á ferskt hráefni sem unnið er frá grunni í eldhúsi okkar. Engin aukaefni eru notuð við matargerð eða bakstur.

Við bjóðum upp á fjölbreyttan matseðil alla virka daga og heildarlausnir í rekstri mötuneyta.